Monday, April 28, 2008
Æfing í kvöld?
Hverjir hafa áhuga á að mæta á æfingu í kvöld klukkan 21:00? Tökum stöðuna klukkan 19:30 í kvöld og miðum við að það verði að vera a.m.k. 8. Ég ætla að mæta.
Friday, April 25, 2008
Fóbó í Risanum í kvöld
Seinustu tvo föstudaga höfum við verið að ná fínni mætingu. Verið þetta um 10 kvekindi. Endilega látið sjá ykkur svo við getum reynt að spila á stórann.
Sumsé, Risinn klukkan 21.00.
Látið heyra!
Sumsé, Risinn klukkan 21.00.
Látið heyra!
Sunday, April 20, 2008
Mánudagsæfing
Minni á mánudagsæfinguna klukkan 21:00. Skráið ykkur hér fyrir neðan og við miðum við að það þurfi a.m.k. 7 til að hafa æfingu. Nú er orðið spurning hversu lengi menn vilja æfa en við getum örugglega haldið tímunum eitthvað fram í maí. Ég er persónulega spenntur fyrir að æfa sem lengst því maður hefur gott af hreyfingunni. Ef menn hafa bara áhuga á að mæta einu sinni í viku þá held ég að við ættum að hafa það á mánudögum og sjá svo til með miðvikudagana. En endilega látið vita hvað ykkur finnst.
Friday, April 18, 2008
Fótbolti í Risanum
Það er fóbó í Risanum í kvöld klukkan 21.00. Náðum fínni mætingu seinasta föstudagskvöl. Endilega kjúið ykkur inn.
Wednesday, April 16, 2008
Æfing í kvöld
Æfing í kvöld klukkan 21:30. Látið vita með mætingu hér fyrir neðan. Ég mæti og Höddi líka.
Monday, April 14, 2008
13 - 13 höldum áfram
Á miðvikudaginn sáum við hvað við í raun getum. Framan af spiluðum við glimrandi vel. Hölum uppteknum hætti í kvöld, nema núna í 60 mínútur. Endum þetta með stæl!
Leikur í kvöld 21.00. Mæting 20.17.
Höddi er búinn að redda einum á flautuna Óli, tjekkar þú á þínum samböndum?

Friday, April 11, 2008
13 - 13, leikur á mánudag, fótbolti í kvöld
Já við stóðum okkur heilt yfir nokkuð vel gegn hepnu liði Júmboys. Hepni þeirra umfram okkar liggur í tja, 500 ára samanlagðri reynslu.
Almennt var ég ánægður með að sjá að menn nentu að berjast og keyra þó svo að útlitið væri á köflum svart. Einn af betri leikjum okkar hvað það varðar í langann tíma.
Úrslitin í leiknum 13 - 13, lengra man ég ekki.
Vert að taka fram að þrátt fyrir einn dómara hjá Júmboys, þá stóð hann sig frábærlega og kemst klárlega í fyrsta sætið fyrir bestu útivalla dómgæslu þessa vetrar.
Maður leiksins: Fúsi
En við getum heldur bætt í og klárað mótið með sóma því á mánudag er annar leikur við félagana.
Og að lokum, þá eru föstudagsæfingar oft ekki mikið fyrir augað, þannig að mig langar að bjóða mönnum að kíkja í fússara í Risanum klukkan 21.00. Ég tek það fram að þar eru fleiri en einungis FH-b menn, þannig að við ættum auðveldlega að ná 5 á 5 eða jafnvel fleiri.
Endilega kommentið á herlegheitin hér að neðan.

Wednesday, April 9, 2008
Stórleikur í kvöld!
seiðandi hlátur
leitaði mig uppi
umvafði mig
lokkaði mig í átt að þér
úr augum þínum
skein sigurinn
-----
Eins og blóm
spretta orðin upp af akri
hugmyndaflugsins,
uns við hefjum okkur
til himins
og dönsum sigurdans
í skýjunum.
-----
Einfalt og gott fyrir kvöldið.
Leikurinn hefst klukkan 21.30 að Varmá mæting 20.45.

Friday, April 4, 2008
Góður sigur
Við náðum okkur í tvö stig í viðbót í kvöld í góðum leik á móti sterku liði Selfoss. Það voru ekki nema níu leikfærir menn sem mættu og svo undirritaður á klukkunni. Við byrjuðum leikinn mjög vel sóknarlega og klikkuðum varla skoti fyrstu tuttugu mínúturnar. Var það Danni sem fór þar fremstur í flokki og var hann grunsamlega oft frír á línunni. Vörnin var hins vegar mjög slök þar sem menn voru ekki að færa nógu vel. Þegar leið á hálfleikinn fórum við að taka verri skot og Selfyssingarnir náðu yfirhöndinni og leiddu í hálfleik 18-20. Við fórum vel yfir stöðu mála í hálfleiknum og allir vissu hvað þyrfti að laga enda var vörnin stórgóð mestan seinni hálfleikinn. Þegar 15 mínútur voru eftir vorum við komnir fjórum mörkum yfir og héldum því nánast fram á síðustu mínútur þegar Selfyssingarnir náðu að saxa á forskotið. Það var óþarflega mikil spenna í lokin en við höfðum þetta 38-37.
Danni: 12 mörk sem er einmitt jafnt því magni af íbúfeni sem hann tók fyrir leikinn. 2 úr vítum að mig minnir og alltaf jafn öruggur þar. Einnig sterkur varnarlega.
Óli: 10 mörk og var með fína nýtingu. Skoraði nokkur glæsileg mörk, átti nokkrar línusendingar og stjórnaði vel vörninni eftir að við fórum í 5-1.
Höddi:4 mörk og var traustur í vörn og sókn. Var kannski ekki alveg á 100% þar sem það var enginn til að skipta við hann en skilaði sínu samt vel og setti mikilvægt mark í lokin.
Siggi: 4 mörk og stjórnaði spilinu virkilega vel. Hélt liðinu vel á hreyfingu og átti fínan varnarleik líka.
Pedda: 4 mörk í glæsilegri kantinum úr horninu. Fínn leikur hjá honum.
Eiki: 3 mörk. Spilaði margar stöður og leysti þær vel. Átti góðar stoðsendingar og stolna bolta.
Haukur: 1 mark og var ekki að spila sóknarleik eins og hann gerir best en bætti fyrir það með mikilli baráttu í vörninni og lokaði þar vel.
Stykkið: Ekkert mark en átti góðar línusendingar og spilaði vel. Var duglegur eftir að hann kom útaf að öskra menn áfram og virkaði eins og góður öllari á liðið (vítamínsprauta á ekki við um þetta lið). Stjórnaði vel í lokin og tók leikhlé á réttum tíma og stappaði stálinu í menn.
Raggi: 24 skot varin og þar af nokkur ansi erfið og mikilvæg í lokin. Varði fanta vel þrátt fyrir að vörnin hafi verið mjög slök í fyrri hálfleiknum og næst besti maður liðsins í kvöld.
Allt annað að sjá til liðsins í kvöld og þetta sýnir okkur hvað við getum ef við sleppum tuðinu og leikgleðin og baráttan ráða ríkjum. Reyndar var ekki yfir neinu að tuða því Egill dæmdi leikinn fanta vel og á hann allar okkar þakkir fyrir.
Svo er það bara æfing á mánudag og leikur miðvikudag við Júmboys að Varmá. Verðum að mæta betur þá og ef við spilum þann leik eins og seinni hálfleikinn í kvöld þá þarf ekki að spyrja að leikslokum.
Skál í boðinu...

Skyldusigur í kvöld!
Við vinnum í kvöld. Við mætum tilbúinir í þennan leik í kvöld. Byrjum frá fyrstu mínútu að spila harða og hreyfanlega vörn með látum. Sóknin verður þannig útfærð að boltinn verður látinn fljóta vel. Ef menn eru að skjóta of snemma eða eitthvað þaðan af verra fara þeir bara út af.
Við ætlum að fagna hverju marki eins og það sé enginn morgundagur. Það verða engar feilsendingar. Við munum skora urmul af mörkum úr hraðaupphlaupum og ekki geiga einu einasta skoti í þeim bransanum enda er það bara rugl.
Snaróði Svíinn mætir aftur til leiks og er það vel. Bjóðum hann hjartanlega velkominn aftur.
En allavega. Mæting tímanlega klukkan 20:15 og muna góða skapið.
Áfram FHb!!

Wednesday, April 2, 2008
Æfing í kvöld
Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Reynum að fjölmenna og það á réttum tíma og plata sem flesta með svo við náum að spila 7 á 7. Svo er leikur við Selfoss í Krikanum á föstudaginn og það væri ekki verra ef menn gætu athugað með dómara sem fyrst svo þau mál séu frágengin. En ég vonast bara til að sjá sem flesta í kvöld.
Subscribe to:
Posts (Atom)