Thursday, October 30, 2008

Æfing í kvöld, leikur á morgun

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:00. Heyrðist á flestum á æfingu í gær að þeir ætluðu að mæta og svo mæta vonandi allir hinir sem ekki komu í gær. Svo er leikur á föstudaginn í Mýrinni við Leiftra (lögguna) klukkan 20:30. Mæting 19:45 því við þurfum að hita betur upp en síðast. Að venju mæta allir sem geta.
Ég kemst sennilega hvorki í kvöld né á morgun en treysti á að menn verði tilbúnir til að berja betur frá sér en í síðasta leik.

Monday, October 27, 2008

Stórtap í fyrsta leik!

Það var enginn glæsileikur sem Fimleikadrengirnir buðu uppá í Mýrinni á föstudaginn þegar við töpuðum fyrir Kórdrengjunum 30-21. Eins og sjá má á tölunum þá var sóknarleikur okkar ansi dapur og fóru ansi mörg dauðafæri í súginn. Ég gæti trúað að markvörður andstæðinganna hafi varið c.a. 30 skot og samt áttum við ansi mörg skot framhjá og yfir. Kórdrengirnir gengu vel út á móti og tóku hart á okkur og það er eitthvað sem við megum taka okkur til fyrirmyndar. Þeir eru ekki með neitt stórlið en þeir lögðu sig alla fram, börðust fyrir hvern annan og voru bæði fljótir fram og tilbaka. Það þarf ekki mikið meira til að vinna leiki í þessari deild. Varnarleikur okkar var einnig ansi dapur. Menn standa ekki rétt í vörninni og í þau fáu skipti sem menn fara út á móti andstæðingunum þá er það ekki með fullum krafti og ekki til þess að stoppa menn. Við þurfum að taka á þessu á næstu æfingum og fara að spila vörn eins og menn án þess þó að menn fari að missa sig í vitleysu eða væli. Ég geri ráð fyrir að menn mæti vel á æfinguna í miðvikudaginn þar sem menn leggja sig alla fram! Byrjunarliðið á föstudaginn var: Eiki, Valli, Siggi, Höddi, Addi, Danni og Fúsi stóð í markinu. Á bekknum voru Hilmar, Jói Skag og Stykkið sem stóð fyrir ættarmóti. Kórdrengirnir skráðu ekki markaskor en ég held að Valli og Siggi hafi skorað mest fyrir okkur. Mér fannst við allir vera lélegir nema kannski helst Jói sem barðist þó a.m.k. eins og maður. Hann hlýtur því nafnbótina Maður leiksins og fær fálkaorðuna að launum.
Það er því ekkert annað í stöðunni en að fjölmenna á æfingarnar á miðvikudaginn og fimmtudaginn og taka vel á því og taka svo enn betur á löggunum í Mýrinni á föstudaginn. Ég skora á Danna að koma svo með skýrslu eftir þann leik.

Friday, October 24, 2008

Leikur í kvöld

Fyrsti leikur tímabilsins er í kvöld við Kórdrengina í Mýrinni í Garðabæ klukkan 20:30. Menn eiga að vera tilbúnir klukkan 20:00. Ég er ekki enn búinn að fá svar frá Kórdrengjunum um að þeir mæti en við gerum samt ráð fyrir því. Venju samkvæmt mæta allir sem geta og láta vita hér fyrir neðan hvort sem þeir koma eða ekki.

Thursday, October 16, 2008

Æfing í kvöld, leikur á morgun

Minni á æfinguna í kvöld, fimmtudag, klukkan 21:00. Svo er leikur á morgun, föstudag, við lögguna í Mýrinni klukkan 20:30. Menn verða að vera tilbúnir 20:00. Að sjálfsögðu mæta allir sem geta og látið alla vita af þessu því það kíkja ekki allir á síðuna.

Tuesday, October 14, 2008

Niðurstöður fundarins

Við Hemmi áttum jákvæðan fund með Einari Andra og Lukkunni fyrr í kvöld og fengust nokkrar niðurstöður úr honum.
Í fyrsta lagi var ákveðið að menn hafi þrjá kosti til að greiða fyrir æfingarnar okkar og verða allir sem ætla að æfa að velja einhvern af þeim kostum og standa við það. Tyrfa, dæma eða borga. Erum við væntanlega að tala um tvö verkefni yfir veturinn eða tvær greiðslur samtals tíu þúsund. Tekið verður við skráningu á því hver ætlar að gera hvað og stjórnin fær upplýsingar um nöfn, email og símanúmer hjá þeim sem ætla að tyrfa eða dæma.
Í öðu lagi hefður sú staða komið upp að þriðju flokkur sem er með tvö lið í Íslandsmótinu spilar sína heimaleiki á föstudögum eins og var skráð bæði hjá okkur og Lukkunni. Það gengur einfaldlega ekki upp. Í staðinn fáum við tíma á laugardögum í Strandgötu klukkan 16 til að spila okkar heimaleiki. Við og Lukkan höfum tíma frá 16-19 á laugardögum og farið var fram á að við myndum helst spila bæði lið sömu laugardaga og þá daga sem liðin eru ekki að spila munu aðrir nýta tímana. Við eigum eftir að ræða hvernig við rððum leikjunum þessa leikdaga. Klárlega mikill fögnuður og spenna að fá að spila í Strandgötunni.
Í þriðja lagi höfum við fengið æfingartíma á fimmtudögum klukkan 21:00. Þetta eru einu lausu tímarnir í húsinu en 2. flokkur á reyndar þessa tíma en notar þá nánast aldrei. Einar Andri sagði að það gæti komið uppá einstaka sinnum að þeir þyrftu að nota þennan tíma og hann ætlar að reyna að láta okkur vita þegar það gerist. Við höldum föstudagstímunum en þeir gætu dottið ansi oft út.
Í fjórða lagi þá buðum við Lukkunni að æfa með okkur og þáðu þeir það. Þeir eru að mæta örfáir á æfingar og ætti þetta að vera betra fyrir alla þar sem við ættum þá oftar að geta spilað á tvö mörk.
Í fimmta lagi þá er fyrsti leikur okkar á föstudaginn við Leiftra (lögguna) í Mýrinni. Ég vonast þvi til að sjá sem flesta á miðvikudagsæfingunni klukkan 21:30.

Monday, October 13, 2008

Framtíð FH-B

Eru menn eitthvað búnir að pæla í æfingagjöldum og framhaldi FH-B?? Við vorum að fá fregnir af því að við gætum ekki spilað okkar heimaleiki á föstudögum þar sem 3. flokkur ætti heimaleiki þá. Hemmi sendi Geira skemmtilega harðort bréf í framhaldi af því og við bíðum svara. Við þurfum væntanlega að ganga frá þessum málum fyrir miðvikudaginn ef við ætlum að fá æfingu þá. Hverjir ætla að vera með í þessu í vetur og borga ef þess þarf eða þá tyrfa eða e-ð þess háttar í staðinn??? Það er kannski það fyrsta sem við þurfum að fá á hreint. Nú höfum við ekki efni á að hafa einhverja farþega í hópnum. Endilega látið vita af ykkar stöðu hér fyrir neðan.

Við Hemmi fundum með stjórn og Lukkunni í Kaplakrika á morgun, þriðjudag, klukkan 19:00. Ef þið hafið eitthvað sem þið viljið koma á framfæri eða mæta þá gerið það endilega.

Wednesday, October 8, 2008

Æfing í kvöld

Minni á æfinguna í kvöld klukkan 21:30. Vona að sem flestir mæti og nú verðum við að fá á hreint hverjir komast norður á laugardaginn. Leikurinn er settur á klukkan 16 og gætum við annaðhvort keyrt heim strax eftir leik eða tekið ölinn og reddað okkur gistingu. Ég veit ekki hvaða eftirmála það hefur ef við náum ekki í lið og verðum að gefa leikinn. Tökum stöðuna á þessu eftir æfingu.